Ég er enn að hugsa um Dr. Holli Anne Passmore

Ekki bara var vinnustofan stórfengleg og að fjalla um eitthvað sem var fyrir mér heilagt og ég hélt að ekki væri hægt að snert á, heldur tók á móti mér lágvaxin haltrandi kona í hækju með heyrnatæki og var greinilega bækluð á hægri hlið, en hún bara tók þannig á móti mér að hún faðmaði mig og sagði ,,velkomin á vinnustofuna”, var 1,55 á hæð og valhoppandi einhvern veginn og bandaði hækjunni sinni í allar áttir.

Eftir vinnustofuna tókum við tali og hún sagði mér að hún hefði unnið fyrir stjórnsýsluna en ákvað að fara í langskólanám 50 ára og nú séu yfir 20 ár síðan og hún hvergi hætt, með marga nemendur og doktorsnema hjá sér! hún hvatti okkur endilega til að vera í bandi við sig, senda sér email o.s.frv. Þvílík ástríða.

Rannsóknarstofa hennar heitir líka auðvitað; Náttúran – Merking lífsins (Nature – Meaning in life (NMIL) Lab).

My research lab, the Nature—Meaning in Life (NMIL) Lab (which I started in 2015), is an international lab composed of undergraduate and graduate students from various universities, whom I mentor, supervise, and collaborate with. Together we explore, discuss, examine, and research pathways to wellbeing and meaning in life. This includes developing and validating practical interventions designed to enhance well-being via nature experiences, nature connectedness, and meaning in life. We also delve into predictors of eco-anxiety, its relationship to nature connectedness, ways of coping with eco-anxiety, and the improtance of play or adults

Dr H!A! Passmore : Welcome

Hún er dósent og deildarstjóri sálfræðideildarinnar við Concordia University of Edmonton og stýrir Nature–Meaning in Life Research Lab sem hún stofnaði árið 2015. Rannsóknir hennar snúast um þrjú meginþemu:

  • tengsl við náttúruna (nature connectedness),
  • merkingu í lífinu,
  • jákvæða sálfræði og vellíðan.

Hún gerði náttúruna að “íhlutun”

Það sem mér finnst sérstaklega fallegt við hana er að hún spyr ekki:

“Hvernig fáum við fólk út í fjallgöngu?”

heldur:

“Hvernig getum við hjálpað fólki að taka eftir náttúrunni sem það gengur fram hjá á hverjum degi?”

Úr því varð Noticing Nature Intervention, sem er ein einfaldasta og jafnframt ein mest rannsakaða náttúruíhlutunin í jákvæðri sálfræði. Hún felst í því að taka eftir náttúrunni og veita því athygli hvernig hún hefur áhrif á tilfinningar okkar. Rannsóknir hennar sýna að þetta getur aukið:

  • jákvæðar tilfinningar,
  • lífsánægju,
  • tilfinningu fyrir tengslum,
  • merkingu í lífinu,
  • og jafnvel upplifun af lotningu (elevation)

hér er að finna hljóðdæmi héðan og þaðan um heiminn: Sounds of Earth | Listen to relaxing ambient sounds of nature

Svona getur náttúran snert okkur og hjálpað:

“The Peace of Wild Things” by Wendell Berry, A Poetry Film by Charlotte Ager & Katy Wang

Þetta getur hjálpað okkur að fá hugmyndir:

Sem sagt, náttúran kallar fram tilfinningar – á til svar við öllum tilfinningum – mismunandi – hvaða tilfinningar viltu díla við, náttúran breytir tilfinningum…stundum róar náttúran okkur, stundum gefur hún okkur kraft og hugrekki…

Við getum náð meiri teningu við náttúruna með mörgum leiðum t.d.

  • með því að taka eftir henni í hversdeginum – hlúð að pottaplöntum, borða ávexti, safna saman í blómavönd úti
  • leika við dropana sem falla á gluggann, beðið eftir að komast út og ímynda okkur lyktina
  • hver styrkleiki nálgast náttúruna með ólíkum hætti
  • taka ljósmynd, snerta, finna lykt, finna á húð, hlusta, semja ljóð, velja orð, láta tákna fyrir okkur, teikna, leika …

Geggjuð frétt frá BBC um ljósmyndun og veðrið og geðheilsu:

Improving wellbeing and mental health as a BBC Weather Watcher – BBC Weather

Hún lét okkur skrifa þakklætisbréf til náttúrunnar 🙂

Hún lét okkur lesa ljóð – þar sem náttúran kom vel við sögu og maður fór ,,inn”í náttúruna eða hvernig hún snart okkur.

Hún lét okkur horfa á listaverk af náttúrunni og hvernig þau létu okkur líða – og af hverju, tilfinningar, hugsanir.

Við vanmetum gildi og mátt náttúrunnar – eru skilaboð þessara mögnuðu litlu konu!

Hér er vinnubókin hennar: ECCP2026_NatureConnectionWorkshop_ResourceBooklet.pdf

og hér eru glærurnar hennar: Dr H!A! Passmore : Welcome

Leave a comment