Við verðum ekki raunverulega heil fyrr en við upplifum okkur sem hluta af náttúrunni

Við verðum ekki raunverulega heil fyrr en við upplifum okkur sem hluta af náttúrunni – ekki aðskilin frá henni.

Vellíðan er því ekki aðeins einstaklingsverkefni heldur sameiginlegt verkefni fólks, samfélags og jarðarinnar.

Hættum að spyrja ,,hvernig get ég nýtt náttúruna” og förum að spyrja ,,hvernig get ég eflt tengsl mín við náttúruna?”

Hvað um að að hvernig þú ert hluti af einhverju stærra … frekar en að bara fara út í náttúruna til að slaka, njóta, hlaða batteríin. Hvað um að finna að þú ert náttúran líka? þú ert hluti af einhverju stærra?

Ég er að fara á vinnustofu sem snýr að þessu:

Raunveruleg vellíðan spretti af tengslum – við sjálf okkur, aðra, samfélagið og náttúruna; Dr. Holli Ann Passmore sjá: Dr H!A! Passmore : Welcome

Lagt er upp með að velferð fólks og heilbrigði jarðarinnar séu órjúfanlega tengd. Þegar við hættum að líta á náttúruna sem eitthvað sem við tökum frá og byrjum þess í stað að rækta gagnkvæm tengsl við hana, skapast betri skilyrði fyrir bæði einstaklinga, samfélög og umhverfi til að dafna.

Þátttakendur fá að upplifa fjölbreyttar æfingar sem efla tengsl við náttúruna, dýpka skynjun og hvetja til ígrundunar. Markmiðið er að auka meðvitund um hvernig við tengjumst stærri heild og hvernig litlar, daglegar venjur geta aukið athygli, samkennd og vellíðan.

Í lok vinnustofunnar taka þátttakendur með sér hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nýta í kennslu, heilbrigðisþjónustu, leiðtogastarfi og samfélagsverkefnum. Áherslan er á að skapa menningu þar sem bæði fólk og náttúra fá tækifæri til að blómstra.

Búin!!! þetta var geggjuð vinnustofa í 3 klukkustundir, leið eins og einn klukkutími!!

Eignaðist japanskan vin! Hann spurði ,,já en nú er náttúran ekki bara dásamleg, við í Japan búum við það að það má búast við mjög stórum jarðskjálfta á næstu 30 árum – auk þess .. þá hef ég verið með frjókornaofnæmi alla mína ævi svo ég er bæði með ást og hatur gagnvart náttúrunni” – mikilvæg spurning 🙂 – svo eins og við íslendingar vitum, náttúran gefur og tekur – hún nærir okkur, hún þjappar okkur saman, hefur kennt okkur að við getum ekki lifað á eyjunni ein – við verðum að hjálpast að … við fáum jarðskjálfta og eldgos, snjóflóð, aurskriður og allskonar óblíð óveður … sjórinn hefur tekið margan sjómanninn frá okkur o.s.frv. – sem hefur gert íslenskar konur snemma ansi sjálfstæðar og líka daprar … en náttúran er allt í kringum okkur og heldur okkur lifandi og á svör við öllum okkar tilfinningum – samsvörun – segir Hally!!! sjá næsta blogg um hana

Ég er enn að hugsa um Dr. Holli Anne Passmore – Hamingjuvísir

Leave a comment