Verða fyrir innblæstri af öðrum, eða öfund:

Bókarkafli Handbókin Opnist í neyð … eftir dr. Julie Smith er full af verkfærum til að takast á við áskoranir
er varða geðheilbrigði og líðan í andartakinu þegar álagið er sem mest og daglega lífið fer á hliðina. Hér fjall
ar hún um það þegar manni finnst maður standa höllum fæti í samanburði við aðra.

  1. Beindu athyglinni að þessari tilteknu færni sem þú öfundar viðkomandi af. Þrengdu fókusinn og gættu þess að freistast ekki til að bera ykkur á heildstæðari hátt saman. Þú ætlar ekki að verða þessi tiltekni íþróttamaður, en þig langar til að tileinka þér visa þætti sem hann hefur náð tökum á og sem gætu líka gagnast þér.
  2. Efldu þig með hugarfari vaxtar. Í því felst að muna að þú ert gerandinn í þínu lífi og ert fær
    um að læra og ná framförum á flestum sviðum ef þú leggur þig fram um það. Svona hugsunar háttur leiðir til jákvæðra skrefa í átt að markmiðum þínum, öfugt við fastmótaðri hugsunarhátt sem gerir ráð fyrir því að hæfileikar þínir séu óbreytanlegir og að sumt fólk sé heppnara en annað. Sá hugsunarháttur leiðir frekar til
    ógagnlegs samanburðar, beiskju og erfiðleika í samskiptum.
  3. Sjálfsvirði þitt er aldrei umsemjanlegt og þú ættir aldrei nokkurn tíma að taka áhættu með það. Þetta er algjört
    grundvallaratriði. Það er uppskrift að ógæfu ef þú leyfir mati þínu á því hvers virði þú ert að vera háð
    áliti annarra. Það er lítið mál að breyta öfund í innblástur ef þú metur ekki þitt eigið virði á því
    hvernig öðrum virðist ganga. Öll getum við fundið einhvern sem er betri í einhverju en við sjálf.
    Það segir þó ekkert um það hvers virði þú í grundvallaratriðum ert sem manneskja. Ef þú efast
    aldrei um hvers virði þú ert nærðu frekar þeim stöðug leika sem veitir þér styrk til að nýta saman burð
    þér í hag. Það verður hins vegar ómögulegt fyrir þig að vinna með þig, ef minnstu vísbendingar um
    að þú sért ekki enn framúrskarandi eru notaðar sem rök fyrir því að þú sért einskis virði eða
    að þú munir aldrei gera nógu vel. Að horfast í augu við eigin ófullkomleika verður þá of ógnandi
    og sársaukafullt. Frammistaða er eitthvað sem alltaf er hægt að bæta, en verðleikar eru stöðugir.
    Ruglaðu þessu ekki saman við sjálfsdýrkun. Í raun krefst þetta þess frekar að þú afsalir þér öllum
    forréttindum. Tilhneigingin til að finnast að alheim urinn hafi fært öðrum heppni og að því skuldi
    hann þér það sama af því þú eigir það sama skilið leiðir til beiskju og gremju frekar en til þess að þú
    gerir það sem þurfi til að þú náir árangri.
    Til að vinnan sé uppbyggileg og leiði ekki til allsherjargagnrýni á okkur sjálf þurfum við að spyrja
    spurninga á borð við þessar: – Hvað, nákvæmlega, veldur öfund hjá mér? – Hvaða færni býr viðkomandi
    yfir sem ég myndi líka vilja ná? – Myndi það hjálpa mér að ná mínum markmiðum ef ég næði
    þessari færni? – Hvernig komst viðkomandi á þennan stað? – Get ég á einhvern hátt gert það
    sama til að komast nær mínum markmiðum?
    Þetta ferli breytir öfund í innblástur frekar en að hún verði að verkfæri sem þú notar til að
    brjóta þig niður með. Þar með verður samanburður þinn við
    aðra mikilvægur hluti af lærdóms ferlinu

Fengið úr mbl 2026, 24.08.

  1. 2026-08-24-all.pdf
  2. Opnist í neyð | Penninn Eymundsson

Leave a comment